26.10.2005  
Hér kemur greinin sem birtist eftir mig í mogganum um 5. geðorðið.... 

Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina


Þegar þetta geðorð  kemur upp í huga minn þá hugsa ég um það hversu hreyfing er mikilvæg fyrir okkur öll, því hreyfingin ein og sér veitir okkur útrás frá amstri dagsins í dag. Að taka nokkrar mínútur á dag í að hreyfa sig léttir lundina því að á meðan getum við unnið í okkur sjálfum. Með göngunni í sumar hringinn í kringum Ísland vorum við einmitt að segja það að flestir ef ekki allir geti hreyft sig á einhvern hátt þ.e.a.s. miðað við getu einstaklingsins, nú er ég ekki að biðja um að allir taki sig til og gangi hringinn, ég er einfaldlega að segja að ef þig langar til að láta þér líða betur þá skaltu hafa 5. geðorðið hugfast en mundu að Róm var ekki byggð á einum degi. Þannig að smá hreyfing alla daga veitir þér sem einstaklingi meira og meira þrek. Gefðu sjálfum þér bara tíma. 


 


Þetta geðorð er búið..........

 
Meira >>   
25.10.2005  
heil fjölskylda skráir sig í klúbbinn!!! 

Já heil fjölskylda skráir sig í klúbbinn minn þetta gerðist í fyrra dag og eru þá 1065 komnir í hann eins og áður er talið er frítt að fara í hann....


 


Það gerist ekki oft að heil fjölskylda skráir sig í klúbbinn en á seinustu viku hafa 6 manns skráð sig í hann sem er virðingarvert því ég veit hvað ég er að gera góða hluti. meira á morgun Kv Bjarki Birgisson 

 
Meira >>